Lengi hefur mig langað að byrja að skrifa aftur um veiði. Það hafa margar hugmyndir komið í kollinn en lítið farið í framkvæmd. Hér er ég þó kominn fyrir framan tölvuna og búinn að leggja í smá vinnu að safna saman myndum fyrir þessa grein.
Fyrir sirka ári síðan valdi ég þrjár bestu flugurnar í hverjum flokki á snappinu mínu og fékk mjög góðar undirtektir. Það kom mér svo sem ekki á óvart því til er heill hafsjór af flugum og sitt sýnist hverjum og allir hafa skoðanir á því hvaða flugur eru bestar. Ég fór því af stað og vildi skrifa grein um mínar uppáhalds flugur í hverjum flokki því margir inn á veiðidellunni eru komnir til ára sinna og eru ekki á Snapchat. Einnig langar mig að gera mitt til að stytta mönnum stundir á meðan þeir bíða eftir veiðitímabilinu.
Ég mun skrifa stuttan enskan texta því ég mun deila þessari grein á erlenda facebook hópa.
En jæja vindum okkur í þetta umdeilda val mitt á bestu flugum í hverjum flokki fyrir sig:
Here i am going to write about what flies are good to have if you come to fish in iceland. I will put them in categories for example, nymphs, wet, dry flies, trout streamers, char streamers and sea-trout flies.
Votflugur – Wet flies.
Mér finnst ekki mikið fara fyrir votfluguveiði hjá íslenskum veiðimönnum. Sjálfur hafði ég ekki mikið notað þá aðferð fyrr en fyrir nokkrum árum síðan er ég var leiðsögumaður fyrir hóp af frökkum sem voru að veiða í Mýrarkvíslinni. Magnið sem þeir veiddu með að nota votflugur var ótrúlegt. Ég fór að tileinka mér þessa aðferð og nota 2-3 votflugur í einu með mjög góðum árangri við vissar aðstæður. Mér finnst best að nota votflugur þegar fiskurinn er að éta rétt undir yfirborðinu og maður sér hann taka “head & tail”. Þessa aðferð nota ég t.d. mikið í Mýrarkvísl og á silungarsvæðunum í Aðaldal t.d. á Presthvammi, Hrauni, Staðartorfu og Syðra-fjalli. Þegar kom að því að tilnefna mínar uppáhalds flugur, þá var ekki hægt að gera upp á milli votflugu útgáfunni af Black Gnat og svo Alder. Báðar þessar flugur eru ótrúlega skæðar og oftast duga þær allan tímann og maður þarf aldrei að skipta um flugur þannig að ég set þær í 1. og 2. sæti. Sú fluga sem fékk 3. sætið heitir March brow og er nokkuð öflug fluga. Önnur fluga sem hefði geta verið þarna er votflugu útgáfan af Héraeyra.
These are in my opinion the three best wet flies to use in Iceland
Alder
Black Gnat wet fly
March Brow
Þurrflugur – Dry flies
Það var virkilega erfitt að velja þær þurrflugur sem kæmust á blað og þurfti ég að vera grimmur með skurðarhnífinn. Ég fór í endalausa hringi með þetta enda til heill hafsjór af flottum og góðum þurrflugum. Þetta eru þær þurrflugur sem komust á blað.
It was tough to decide what dry flies would be in the top three but in the end it came down to these three flies.
Nr 1. Klinkhammer er á toppnum þegar kemur að þurrfluguveiði á Íslandi að mínu mati. Ef svartur er ekki að virka þá mæli ég með því að skipta yfir í brúnann. Frábær fluga og að mínu mati á toppnum.
Nr. 2. Black Gnat er frábær fluga og gefur Klinkhammernum lítið eftir.
Nr. 3. Europa. Það var hrikalega erfitt að velja þriðja sætið og var ég oft búinn að skipta um skoðun en endaði á þessari flugu. Þetta er frábær fluga sem hefur gefið mér marga ógleymanlega fiska.
Þar sem valið var virkilega erfitt að þá ákvað ég að nefna nokkrar flugur sem voru nálægt því að komast á topp þrjá listann “honorable mention”.
Elk Hair Caddis Galdralöpp
Suttlecock Daddy long legs
Púpur – Nymphs
Valið var ekki mikið auðveldara í púpunum skal ég segja ykkur. Það sést þó bersýnilega að ég er mikill aðdáandi flugu-Sveins og finnst púpurnar hans alveg einstakar. Ég geri mér alveg grein fyrir því að það eru margir færir hnýtarar t.d. fyrir sunnan en því miður hef ég ekki verið svo heppinn að veiða á flugur sem þeir hafa hnýtt og því er erfitt fyrir mig að velja flugur eftir þá. En eins og ég hef sagt að þá er þetta val út frá mínu mati og reynslu.
There are so many good nymphs to choose from and many of them are made by Icelandic fly tyers so it was very tricky. But with these nymphs in your box you are good to go.
Nr.1. Pheasant tail hnýtt eftir Svein Þór. Ég kann einstaklega vel við hans útgáfu af PT. Yfirleitt er flugan þó með kopar haus en ekki gull. Þetta er alltaf fyrsta fluga undir hjá mér ef ég veiði á púpur.
Nr. 2. Það er eiginlega ekki hægt að gera upp á milli 2. og 3. sætis. Ég setti samt Krókinn í 2. sætið núna því sú fluga gaf mér einstaklega vel seinasta sumar og í rauninni gaf mér fleiri fiska en PT.
Nr. 3. Rollan er alveg mögnuð fluga. Þetta er fluga sem ég myndi alls ekki vilja vera án og hefur hún meðal annars gefið mér nokkra laxa.
Aðrar flugur sem voru nálægt því að komast inn á topp þrjá:
Honorable mention.
Gulltoppur Beykir
HéraeyraPeacock
Glóðin rauð (til í fleiri litum)Hrafna
Gæran
Straumflugur fyrir bleikjur – Streamers for Artic Char.
Það var ekki eins erfitt að velja flugurnar fyrir bleikjuna. Ég er mjög einhæfur þegar kemur að straumflugum fyrir bleikju og mögulega full þröngsýnn. Í þessum lið vel ég fjórar bestu flugurnar.
It was not as complicated to pick streamer flies for Artic Char. I tend to use only few flies when fishing for Artic Char because these four flies do the trick.
NR. 1. Það þarf ekki að koma mörgum á óvart að Bleikur Nobbler varð í fyrsta sæti hjá mér þegar kemur að straumflugu fyrir Bleikju. Gríðarlega öflug fluga og alltaf fyrsta fluga undir hjá mér þegar kemur að vali á straumflugu fyrir Bleikju. Það má samt segja að allir Nobblerar veiði vel. Ég hef fengið góða bleikjuveiði á svartan, appelsínugulan og rauðan. Ef ég er í ósaveiði þá er hvítur Nobbler fyrsta fluga undir.
NR. 2. Styrða er mjög góð fluga sem allir ættu að hafa í boxinu. Hún kemur í fleiri litum og hef ég t.d. veitt vel á svarta og gula.
NR. 3. Heimasætan mjög góð fluga. Það er ekki svo langt síðan að ég byrjaði að nota þessa flugu að einhverju viti. Hún gaf mér vel í sumar og þá sérstaklega í Eyjafjarðará.
NR. 4. Bleik og blá er ein af þessu klassísku bleikju flugum sem ætti að vera í boxinu hjá hverjum einasta veiðimanni.
Straumflugur fyrir Urriða – Streamers for Brown-trout.
Mér finnst urriðinn mun tökuglaðari en bleikjan og því oft breiðara val á flugum sem maður hefur. Ef urriðinn er í stuði þá nánast geturðu hent berum önglinum með kanski smá hár lufsu á og hann mun taka fluguna. En þegar hann er tregur til þá getur verið gott að hafa þessar flugur í boxinu. Listinn verður bara topp 2 bestu flugurnar þar sem ég tel tvær flugur bera af í þessum flokki. Ég mun svo nefna aðrar flugur sem eru góðar en komast að mínu mati ekki með tærnar þar sem hinar tvær hafa hælana.
The Trout can be very aggressive so you have more options when picking flies then when you decide what to offer for the Artic Char. These are the flies you have to have in your box when fishing for Brown trout.
NR. 1-2. Black Ghost er ótrúlega góð fluga þegar kemur að urriða. Fyrir mér eru tvær straumflugur sem bera af í urriðaveiði og er Black Ghost önnur af þeim. Flugan er til í mörgum afbrigðum en ég vil annað hvort hafa hana með fish skull eða kúlu til að þyngja.
NR. 1-2. Rektor er á toppnum með Black Ghost. Það kemur örsjaldan fyrir að maður þarf að nota aðrar flugur en þessar tvær. Ég man ekki hversu oft ég hef veitt með sömu fluguna allan daginn og þá er það önnur hvor þessi. Án efa að mínu mati þær flugur sem bera af.
Aðrar góðar flugur – Honorable mention
DentistSvartur Nobbler
Svartur DýrbíturOlive Dýrbítur
Appelsínugulur Nobbler.
Straumflugur fyrir sjóbirting – Streamers for Sea-trout
Valið á straumflugum fyrir sjóbirting er svipað og fyrir urriðann með nokkrum undantekningum. Hér kemur listinn yfir þær flugur sem ég tel nauðsynlegt að hafa í boxinu þegar vorveiðin byrjar 1. apríl.
These are my listed flies for Sea-trout.
NR. 1. Black Ghost er óformlegur konungur straumfluganna þegar kemur að urriða og sjóbirting.
NR. 2. Iða frábær fluga sem allir ættu að hafa í boxinu sínu þegar þeir veiða sjóbirting.
NR. 3. Dýrbítur er frábær fluga þegar kemur að sjóbirting. Ég nota mest hvítan og svartan.
Flæðamúsin fær að fljóta með þar sem þetta er falleg fluga og ég veit hún gefur oft vel þó svo að hún hafi ekki verið mér gjöful.
Jæja ég vil minna að þetta er aðeins mín skoðun á þessum flugum, eflaust margir sem tengja við eitthvað af þessu og öðrum sem þykir þetta algjör vitleysa. Þessi grein var skrifuð með það í huga að stytta mönnum stundir í svartasta skammdeginu og vonandi hjálpar þessi listi veiðimönnum sem eru að stíga sín fyrstu skref í sportinu þannig aðþeir hafi einhverja hugmynd um hvaða flugur skal kaupa í boxið þegar veiðitímabilið byrjar. Ég vona að þið takið viljann fyrir verkið og hafið gaman af lestrinum.
Í næsta mánuði ætla ég að gera fluguhnýtingum hátt undir höfði á samfélagsmiðlunum mínum þannig ef þið hafið ekki bætt mér inn á instagram eða snapchat að þá endilega gerið það.
Kv. Valdimar (Maddicatch)
P.s. ég man af hverju það er svona langt síðan ég skrifaði seinast. Þetta tekur svo svakalega langan tíma að smíða svona grein. Ég sleppti laxa flugunum því það er orðið áliðið en það þýðir líka að ég hef ástæðu til að setjast aftur niður og skrifa.